Við tökum vel á móti þér
Í Grundarfjarðarhöfn fæst öll sú þjónusta sem nauðsynleg er sjófarendum. Við leggjum áherslu á skjóta og góða þjónustu og persónulegt viðmót.
Á þessum vef má finna allar helstu upplýsingar um Grundarfjarðarhöfn og þjónustuaðila.
Veður og sjólag
Hér er að finna upplýsingar um veður og sjólag
Veðurhorfur næsta sólarhring fyrir Breiðafjörð
Veðrið síðustu 12 klst. í Grundarfirði
Nesvegur 4
Framvinda mála – Hvað hefur verið gert og hver er sýnin.
Unnið hefur verið þegar tími hefur verið til, að tiltekt utan sem innanhúss, verið er að stúkka af í vélasalnum gamla þar sem fyrirhugað er að leigja út litla bása fyrir fólk sem langar að vera með sölu á hafnarsvæðinu, einskonar kolaport stemmingu með aðkomu af pílaplani að sunnanverðu. Áfram verður húsbíla og vagnageymsla eins og fyrri eigendur voru með en í aðeins minna mæli. Með haustinu er áætlað að rífa klæðningu af húsinu þar sem haldið er að festigrind sé farin að gefa sig, klæðningin er byrjuð að fara af og er þetta fyrirhugað til að koma í veg fyrir tjón.
Auglýsing
Er því auglýst pláss í salnum sem verður vonandi tilbúinn í byrjun júlí eða eftir úttekt.
Auglýst eru laus pláss í húsbýla og vagnageymslu.
Einnig er auglýst smápláss í húsinu sem verða skemuð af.
Áhugasamir hafi samband á hofn@grundarfjordur.is